SAMFÉLAGIÐ
Fyrirtækið hyggst skapa öflugan vinnustað þar sem mikið verður lagt í að efla mannauð og liðsanda í félagsinu.
Fiskeldið og áhrif þess á atvinnulífið í Eyjum
Stofnun fiskeldisins mun hafa veruleg áhrif á atvinnulífið í Eyjum. Sé miðað við að 10.000 tonn af laxi verði framleidd á ári má reikna með að:
Félagið verði meðal allra stærstu fyrirtækja í Vestmannaeyjum
Fyrirtækið muni með beinum og óbeinum hætti skapa störf fyrir yfir 100 manns
Mikil aukin umsvif verða í flutningum um höfnina í Vestmannaeyjum
Framkvæmdatímabil stöðvarinnar muni vara að minnsta kosti 5 ár og fjölmörg iðnfyrirtæki munu koma að uppbyggingunni

Ef áætlanir félagsins ganga eftir má reikna með að frekari stækkanir komi í kjölfarið en lóðir á iðnaðarsvæði Viðlagafjöru gætu mögulega rúmað allt að 30.000 tonna framleiðslu á ári. Það eru mikil tækifæri til vaxtar enda mikil eftirspurn eftir hágæðamatvöru sem er framleidd með ábyrgum hætti.
Fyrirtækið hyggst skapa öflugan vinnustað þar sem mikið verður lagt í að efla mannauð og liðsanda í félaginu. Starfsmenn verða hvattir til að sækja sér menntun í fiskeldi enda gæði starfseminnar drifin áfram af fólkinu sem mun annast fiskinn og sjá honum fyrir góðum vaxtarskilyrðum.
Með því að sameina frábær skilyrði í náttúrunni, samfélaginu og krafti fólksins í félaginu hyggjast stofnendur Icelandic Land Farmed Salmon byggja upp nýja stoð í atvinnulífi Vestmannaeyja inn í framtíðina.