UM ILFS
Markmið verkefnisins er stofnun fiskeldisstöðvar á landi í Vestmannaeyjum
fyrir 10.000 tonn á ári af laxi.
Fiskeldi hefur um langt skeið verið sú grein innan matvælaiðnaðarins sem vex hraðast. Aukning fólksfjölda á heimsvísu og batnandi lífsgæði hafa gert að verkum að eftirspurn eftir laxi hefur aukist hraðar en framboð.
Gæði afurða úr eldislaxi eru orðin mikil og er hann vinsæl matvara víða um heim. Laxeldisstöðin í Viðlagafjöru mun framleiða hágæða matvöru með hreinni umhverfisvænni orku í hreinum sjó við hagstæðar aðstæður en sjávarhiti í Vestmannaeyjum er sá hæsti umhverfis Ísland. Affall verður hreinsað frá stöðinni og úrgangur nýttur eftir fremsta megni. Seiði verða bólusett en engin lyf verða notuð í eldinu. Með því verður sköpuð náttúruleg hágæða matvara með sjálfbærum hætti.
Það er metnaður okkar að starfa í sátt við samfélag og náttúru og byggja upp frábæran vinnustað með besta fáanlega starfsfólki sem völ er á. Eldið verður staðsett á norðaustanverðri Heimaey á svæði sem hefur verið nýtt sem náma undanfarin ár. Svæðið er mikið raskað en ætlun félagsins er að hafa allt umhverfi eldisins til fyrirmyndar.
Að vinna og búa í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjar er spennandi staður fyrir unga sem aldna til að búa á með fjölskyldu. Með tæplega 5000 íbúa eru allir innviðir til staðar svo sem leik-, grunn- og framhaldsskóli með fjölbreyttar námsbrautir. Öflugt íþróttastarf er á eynni þar sem lið kvenna og karla spila í efstu deildum bæði í handbolta og fótbolta ásamt því að einn besti golfvöllur Íslands liggur á strönd Atlantshafsins. Mikill og vaxandi ferðamannastraumur til Vestmannaeyja byggir enn frekar upp innviði sem tengjast dægrastyttingu, veitingahúsum og útivist.
Landslag er stórkostlegt með óendanlegum möguleikum til göngu og hlaupa enda er eitt fjölmennasta víðavangshlaup Íslands haldið í Vestmanneyjum.
Vestmannaeyjar draga til sín fjölmarga gesti yfir sumarið. Mörg stór íþróttamót eru haldin með þátttöku þúsunda barna og foreldra þeirra. Í byrjun ágúst er haldið stærsta útihátíð á Íslandi í Vestmannaeyjum með þátttöku heimamanna og gesta.
Stofnendur og starfsmenn ILFS

Lárus Ásgeirsson Acting chairman of the board larus@ilfs.is
Lárus er verkfræðingur að mennt, hann hefur langa reynslu úr viðskiptalífinu á Íslandi fyrir Marel, Sjóvá og Icelandic Group. Hann var einnig um langt skeið stjórnandi í stórum verkefnum í þauleldi á kjúkling, rækju og fiski í Saudi-Arabíu.

Daði Pálsson
CEO
dadi@ilfs.is
Daði hefur starfað í fiskvinnslu alla sína starfsævi, stofnandi í þrem sjávarútvegsfyrirtækjum í Vestmannaeyjum þar á meðal Leo Seafood, stórri vinnslu á hvítum fiski. Leo Seafood er bakhjarl þessa verkefnis.

Hallgrímur Steinsson Director of Tecnical Execution halli@ilfs.is
Hallgrímur er vélstjóri og með BS í líftækni. Hann er framkvæmdastjóri þurrkverksmiðjunnar Löngu í Vestmannaeyjum en var áður vélstjóri á uppsjávarfiskiskipum í Vestmannaeyjum.

Þórarinn Ólafsson
Forstöðumaður fiskeldis
toti@ilfs.is

Bragi Magnússon
Verkefnastjóri framkvæmda
bm@ilfs.is

Kristín Hartmannsdóttir
Verkefnastjóri
kristin@ilfs.is

Hrafn Sævaldsson
Forstöðumaður fjármála og stjórnsýslu
hrafn@ilfs.is